Listaunnendur fá sko heldur betur mikið fyrir sinn snúð í New York en hér er að finna einhver mögnuðust söfn heims. Hérna koma þau sem standa upp úr.
Ef þú hefur tíma/áhuga fyrir aðeins eitt safn þá skaltu heimsækja Metropolitan safnið. Þvílíkur staður. MET safnið er eitt frægasta safn veraldar. Það inniheldur það yfir tvær milljónir hluta og spannar víst um 5000 ár af menningu. Ekki skemmir húsnæðið fyrir, en það er um 200.000 fermetrar.
Lítið tips: MET tekur við frjálsum framlögum, þannig að miðinn kostar það sem þú vilt að hann kosti. Þeir mæla með því að fólk borgi $20 fyrir miðann, og get ég alveg tekið undir það að fólk sem er kannski að koma þarna einu sinni á ævinni (eða 1x á ári) borgi þá upphæð til að styrkja safnið. En þetta er auðvitað undir þér komið, sjálfur fer ég sirka 5x á ári í safnið og borga fyrir það sirka samtals $20.
Hvar er MET?
1000 5th Avenue (við 82 stræti)
New York, NY 10028
Sími: (212) 535-7710
[Sjá á korti]
Á meðan MET safnið er kannski flottasta og merkilegasta safnið, þá er MoMA eitt frægasta nútíma listasafn heims. Þar er hægt að finna allt frá klassískum málverkum upp í vel hönnuð húsgögn. Fyrir þá sem hafa gaman af listum, þá er MoMA kannski mikilvægara safn er MET, en fyrir 80 ára gamlan bónda frá Íslandi gæti ég trúað að MoMA væri verra en Abu Ghraib fangelsið í Írak. Fer allt eftir því hvar áhugi þinn liggur.
Það kostar $20 að skella sér í MoMa, og er vel þess virði ef þú hefur áhuga á listum.
Hvar er MoMA?
11 West 53rd Street (milli 5 og 6 avenue)
New York, NY 10019
Sími: (212) 708-9400
[Sjá á korti]
Whitney er eins og nafnið gefur til kynna, nútíma listasafn sem fókusar mest megnis á Ameríska list. Safnið er í svipuðum standard og MoMA, og fyrir þá sem ætla sér að heimsækja eins mörg söfn og hægt er, þá er eins gott að gleyma ekki Whitney safninu.
Það kostar $18 að heimsækja Whitney.
Hvar er Whitney?
945 Madison Avenue (á horni 75 strætis)
New York, NY 10021
Sími: (800) 944-8639
[Sjá á korti]
Ég veit ekki alveg hvað á að segja um Guggenheim annað en það er gríðarlega virt nútíma listasafn, sérstaklega virt meðal listamanna og það er talið fínna að vera með sýningu í Guggenheim en í MoMA svo dæmi sé tekið. Sjálfur hef ég ekki séð margt í Guggenheim sem mér fannst rosalega flott og skemmtilegt, en það hefur komið fyrir. Byggingin er auðvitað mögnuð, og mikilvægur partur af því að heimsækja safnið. Eins og með Whitney þá er mikilvægt fyrir þá sem ætla sér stóra hluti í listaskoðun, að tékka á Guggenheim.
Það kostar $18 að heimsækja Guggenheim.
Hvar er Guggenheim?
1071 Fifth Avenue (við 89 stræti)
New York, NY 10128
Sími: (212) 423-3500
[Sjá á korti]
American Museum of Natural History, oftast kallað The Natural History Museum, er flottasta náttúrufærði safn Bandaríkjanna. Ég mæli sterklega með því að fólk heimsæki þetta safn, sérstaklega barnafjölskyldur. Ég get lofað þér því að barnið þitt á eftir að skemmta sér vel þarna inni, og þú líka!
Lítið tips: Eins og með MET safnið þá tekur AMNH við frjálsum framlögum, þannig að miðinn kostar það sem þú vilt að hann kosti. $16 er aftur á móti það verð sem safnið mælir með að þú borgir.
Hvar er AMNH?
79 Street og Central Park West
New York, NY 10024
Sími: (212) 769-5200
[Sjá á korti]